Jæja nú er ég búin með þrjú próf af fjórum... og hefur mér gengið bara svona allt í lagi og bara já veit ekki ... en það kemur bara í ljós, maður er nú ekkert að stressa sig út af því !! Fór í próf í dag og svo var maður búin að vaka frekar lengi nóttina áður að læra og vaknað svo snemma, en allavega þegar ég var búin í prófinu, stend ég upp og vá ég hélt það ætlaði að líða yfir mig sko, þvílíkur þrýstingur í hausnum, mig svimaði alveg og vá hvað ég var ekki að fíla það......
Á föstudaginn verður mikill gleðidagur en þá er 21.desember sem þíðir að þá fer ég í próf kl.13:30 (það eru ekki gleðitíðindin) og ér það síðasta prófið, fer svo á æfingu og svo er komið jólafrí í öllu í smá tíma !!!!
Vá hvað maður getur ekki beðið eftir að komast í smá hvíld slappa af, ekkert að stressa sig, geta bara verið heima, haft það kósí, horft á allar skemmtilegu jólamyndirnar sem ég á
Og bara notið þess að vera í smá fríi svona einu sinni á ári !!!
Ég veit það verða hvít jól, herra alheimur gerir það fyrir mig bara því ég þrái það að hafa hvít jól !!!
En vonandi kem ég með krassandi og skemmtilega færslu inn fljótlega, ég bara fékk núna tilfinningu fyrir að þurfa að blogga !! skil ekki afhverju en svona er heimurinn skrítinn...
Kv.Álfur